Vörulýsing

SignalTek CT mælirinn frá Ideal hefur getu til þess að prófa netkerfi skv. Cat 5e, Cat6, Cat6A og Cat 7 hvort sem er skermað og óskermað kerfi er að ræða. Er með snertiskjá í lit, fullkomið vírayfirlit (tengimynd) og nákvæma staðsetningu ef villa finnst í lögninni. Mælirinn býr sjálfur til skýrslur á PDF eða CSV (geymir 5000 mælingar), einnig er hægt að færa mælingar yfir á USB eða tölvu.

SignalTek CT er ætlaður til prófunar á kerfi þar sem ekki er virkt ethernet.
Ef um virkt kerfi er að ræða mælum við með SignalTek NT.

Impersonating as ()