OPUS HE WMC hleðslutæki á vegg, 24 V DC. Öflugt tæki búið kælitækni með varmaburði (e. convection cooled). Notist saman með rafhlöðubanka til að veita áreiðanlega og samfellda DC spennu fyrir aðveitu- og dreifistöðvar, vinnslulínur og fjarskiptastöðvar.
Í hleðslutækinu eru MHE afriðlar og VIDI+ stjórneining. Kemur með 12 forritunarlegum aðvörunarsnertum auk þess sem hægt er að tengja það við nútíma samskiptamáta, s.s. Ethernet TCP/IP, Modbus TCP/IP, SCADA IEC61850, SNMP og RS-232.