Wöhner

Hágæða vörur frá Wöhner

Wöhner var stofnað fyrir 90 árum og er í dag áreiðanlegur samstarfsaðili þúsunda fyrirtækja á heimsvísu í afldreifingu, iðnstýringum og endurnýjanlegri orku.

Wöhner

Hágæða vörur frá Wöhner

Wöhner var stofnað fyrir 90 árum og er í dag áreiðanlegur samstarfsaðili þúsunda fyrirtækja á heimsvísu í afldreifingu, iðnstýringum og endurnýjanlegri orku.

Wöhner QUADRON® 185Power

QUADRON® 185Power

QUADRON® listarofarnir eru krúndjásn Wöhner þegar kemur að búnaði fyrir afldreifingu, enda eru þeir ótrúlega meðfærilegir og öruggir. Hægt að fá fyrir 160-500 A með silfur- eða nikkelhúðuðum innátengjum.

Wöhner Capus®

Crossboard® skinnukerfi

Crossboard® skinnukerfið frá Wöhner er létt og meðfærilegt og einstaklega fljótlegt í uppsetningu, hægt að fá í breiddum 225-1100mm og auðvelt að tengja svera víra inn á það. Engin þörf á verkfærum við uppsetningu og hægt að taka niður án aðstoðar.

Wöhner Capus®

Capus® AC straumrofar

Wöhner framleiðir áreiðanlega og einstaklega vandaða 3 póla straumrofa í miklu úrvali. Fáanlegir frá 80-3150 A

Wöhner Capus®

Capus® DC straumrofar

Einstaklega vandaðir og fyrirferðarlitlir straumrofar fyrir jafnspennu sem samþættast óteljandi mismunandi uppsetningum. Rofarnir vinna af fullri getu í mjög heitum aðstæðum og hafa hlotið vottanir í samræmi við staðla IEC 60947-3 og UL98B.

Configurator® Frábær hugbúnaður til hönnunar

Prófaðu þig áfram með uppsetningar og skoðaðu afraksturinn í fullkomnu þrívíddarlíkani. Einnig hægt að skoða í viðbættum raunveruleika (AR) og sjá í raunverulegum hlutföllum þar sem á að hefja uppsetningu. Hægt er að skanna QR kóðann á myndinni til að opna hugbúnaðinn eða smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Wöhner er framsækið fyrirtæki með yfir 100 einkaleyfi

Wöhner er þýskt fyrirtæki með víðtækt net þjónustuaðila á alþjóðavettvangi og starfsemi í yfir 80 löndum. Wöhner er í stöðugum vexti og þykir eitt fremsta fyrirtæki heims á sviði rafiðnaðar.

Wöhner á yfir 100 einkaleyfi í umferð, sem undirstrikar framsækni og elju þessa sterka vörumerkis. Allar vörur Wöhner eru framleiddar í Þýskalandi.

Spilaðu myndbandið til að sjá nánar hvernig Wöhner skarar fram úr í rafiðnaði

Impersonating as ()