EATON 9SX

Hágæða varaaflgjafar sem koma í veg fyrir að þín kerfi liggi niðri

Eaton 9SX er heimsklassa varaaflgjafi sem mætir ýtrustu kröfum. Eaton 9SX hentar lækningatækjum, iðnaði og tölvuumhverfi. Um leið og bilana er vart í raforkukerfum skiptir 9SX sér tafarlaust yfir í rafhlöðuham og tryggir rekstaröryggi þinna kerfa.

EATON 9SX

Hágæða varaaflgjafar sem koma í veg fyrir að þín kerfi liggi niðri

Eaton 9SX er heimsklassa varaaflgjafi sem mætir ýtrustu kröfum. Eaton 9SX hentar lækningatækjum, iðnaði og tölvuumhverfi. Um leið og bilana er vart í raforkukerfum skiptir 9SX sér tafarlaust yfir í rafhlöðuham og tryggir rekstaröryggi þinna kerfa.

Eaton 9SX UPS tryggir uppitíma

Með tvöfaldri umbreytingartækni fylgist Eaton 9SX stöðugt með aflgæðum og leiðréttir bæði spennu og tíðni. Eaton 9SX er búinn einni bestu fáanlegu tækni til að sía burtu truflanir frá veitukerfum. Innri tækni tryggir samfelda þjónustu ef upp kemur rafmagnsbilun og veitir viðkvæmum tækjum fullkomið öryggi.

Með aflgjafastuðli 0,9 skilar 9SX 28% meira afli en sambærileg UPS-tæki og býður lengri endingartíma rafhlöðu með Eaton ABM® tækni.

Leikur einn að stjórna með frábæru notendaviðmóti

  • LCD skjárinn á Eaton 9SX birtir skýrar upplýsingar um stöðu kerfisins og sýnir niðurstöður úr mælingum. Einnig er hægt að framkvæma ýmsar stillingar og aðgerðir á skjánum.
  • 9SX getur mælt orkunotkun og er hægt að fylgjast með kWh stöðu á LCD skjánum eða í Eaton Intelligent Power® hugbúnaðinum.
  • Stýring á álagshlutum gerir mögulegt að forgangsraða lokunum á óþarfa búnaði til að hámarka rafhlöðuendingu fyrir mikilvægan búnað.
  • 9SX býður upp á tengimöguleika með Serial, USB og aukarauf fyrir samskiptakort.
  • Eaton Intelligent Power® hugbúnaðurinn samþættist auðveldlega við helstu sýndarumhverfi og skýjalausnir.

Eaton netkort Gigabit

Eaton Gigabit netkortið er tengibúnaður fyrir UPS sem sameinar yfirgripsmikla orkustýringu og markaðsleiðandi netöryggi. Eaton Gigabit var fyrsta netkortið sem var sett á markað með öryggisvottanir frá óháðum aðilum.

Frábærar vörur frá Eaton

Impersonating as ()