Vörulýsing

Þægilegur og góður mælir til úttektar og prófanir á raflögnum, sem uppfyllir þá staðla sem til þarf (IEC 61010-1, IEC 61557).

Mælirinn kemur í tösku ásamt nauðsynlegum snúrum, leiðbeiningum, kvörðunar vottorði og rafhlöðum (8xAA).

Mælingar
· Leiðnimæling: 20/200 Ω, 200 mA prófunarstraumur
· Einangrunarmæling : 100/250/500/1000 V
· Hringrásarviðnám: 2/20/2000 Ω, 15 mA prófunarstraumur við 2000 Ω
· Lekaliðaprófun RCD: 6/10/30/100/300/500/1000 mA
· Gerðir lekaliða: AC (G/S), A (G/S), F (G/S), B (G/S), EV
· Skammhlaupsstraumar (PSC/PFC): 2000 A/50 kA (útreiknað)
· Fasaraðsjá
· Spennumæling: 0-600 V AC
· Tíðnimæling: 45-65 Hz
· Prófun f. eldingavarnarbúnað (SPD (Varistor) test)
· Raftækjaprófun (PAT test)

Kynningarmyndband fyrir Kyoritzu6516BT

Impersonating as ()