Innrauður hitamælir sem fellur vel í hendi til þess að mæla yfirborðshita. Á mælinum er stilling fyrir lágmarks- og hámarkshitastig með hljóðviðvörun og stilling fyrir mismunandi hitaútgeislun efna sem mæla á. Mælirinn kemur stilltur á 0,95 sem gildir fyrir flest efni. Mælirinn er með upplýstum skjá og kemur í tösku. Rafhlaða fylgir með.