INTERCABLE FBS - Hálfleiðarahefill : 1722 0

Sölueining: 1 stk.1 stk.

Vörulýsing

Hefill til að hefla hálfleiðaralagið af PEX-inu á millispennu- og háspennustrengjum, að hámarki 1,5 mm á þykkt. Þvermál á PEX-i með hálfleiðaralagi má vera frá 10-52 mm. Skurðarblað er stillanlegt í dýpt frá 0-1,5 mm.

Mikilvægt er að setja hefilinn í keyrslu eftir að hafa verið stilltur af, þegar nálgast er enda skrælingar skal minnka keyrsluna og enda á nokkrum hringum án þess að skera meir,  þ.e.a.s. að hringur hálfleiðaralags sem eftir verður sé kónað niður og með sléttar brúnir. Ekki skal undir neinum kringumstæðum taka hefilinn af og slíta hálfleiðaraskrælinginn af. Gætið einnig að opna hefilinn vel áður en honum er rennt af streng eftir skrælingu. Sjá myndband á YouTube.


Impersonating as ()